 
Settu höfuðtólið á eyrað
Ýttu svo hlustinni varlega að eyranu.
Hægt er að snúa eyrnapúðanum til að 
höfuðtólið haldist fast á eyranu (14). 
Ef höfuðtólið er t.d. haft á hægra 
eyranu þarftu kannski að snúa 
eyrnapúðanum til hægri til að hann 
fari sem best. Ef þú ert með eyrnalokk 
þarftu að gæta þess að hann festist 
ekki í eyrnapúðanum.
Ef þú vilt nota höfuðtólið með 
eyrnalykkjunni, þá festirðu lykkjuna 
við það (12). Til að losa lykkjuna 
kippirðu henni varlega úr höfuðtólinu. 
Renndu eyrnalykkjunni aftur fyrir 
eyrað (10) og snúðu höfuðtólinu í átt 
að munninum (11). Stilltu lengd 
lykkjunnar með því að draga hana 
fram eða til baka.