 
Kynning
Með Nokia BH-607 Bluetooth 
höfuðtóli er hægt að hringja og svara 
símtölum handfrjálst í farsíma. 
Höfuðtólið er með vörn gegn 
veðurhljóðum og hávaðavörn sem 
gerir kleift að talað sé í símann 
í hávaðasömu umhverfi.
Lestu þessa notendahandbók vandlega 
áður en þú byrjar að nota höfuðtólið. 
Lestu einnig notendahandbók tækisins 
sem ætlunin er að tengja við 
höfuðtólið.
Þessi vara getur innihaldið smáa hluti. 
Þá skal geyma þar sem lítil börn ná 
ekki til.
Til athugunar: Yfirborð 
platna þessa tækis inniheldur 
ekki nikkel. Ryðfrítt stál er 
á yfirborði tækisins.