 
Meðferð tækisins
Í tækinu fer saman frábær hönnun og 
flókin tækni sem fara þarf gætilega með. 
Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við 
að halda tækinu í ábyrgð.
• Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki
og hvers kyns vökvar geta innihaldið 
steinefni sem tæra rafrásirnar. 
Ef tækið blotnar skal leyfa tækinu 
að þorna alveg.
• Ekki skal nota tækið á rykugum og
óhreinum stöðum né geyma það þar.
Hreyfanlegir hlutir og rafrænir hlutar 
þess geta skemmst.
• Ekki skal geyma tækið á köldum eða
heitum stað. Hátt hitastig getur 
dregið úr endingu rafeindatækja, 
skemmt rafhlöður og undið eða brætt 
sum plastefni. Þegar tækið hitnar upp 
að eðlilegu hitastigi getur raki 
myndast innan í því og hann getur 
skemmt rafrásaspjöld.
• Ekki skal reyna að opna tækið.
 
ÍSLENSKA
• Tækinu skal ekki henda, ekki skal
banka í það eða hrista það. Óvarleg 
meðferð getur skemmt innri 
rafrásaspjöld og fíngerðan búnað.
• Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til
hreingerninga eða sterk hreinsiefni til 
þess að þrífa tækið. Aðeins skal nota 
mjúkan, hreinan og þurran klút til að 
hreinsa yfirborð tækisins.
• Ekki skal mála tækið. Málningin getur
fest hreyfanlega hluti tækisins og 
komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.
Þessar ábendingar eiga jafnt við um 
tækið, hleðslutækið og annan 
aukabúnað.
Endurvinnsla
Skilaðu alltaf notuðum raftækjum, 
rafhlöðum og umbúðum á viðeigandi 
sorp- og endurvinnslustöð. Þannig 
geturðu dregið úr óflokkaðri sorplosun 
og stuðlað að endurvinnslu. Fáðu 
upplýsingar um hvernig hægt er að 
endurvinna Nokia-vörur þínar 
á www.nokia.com/werecycle, 
eða nokia.mobi/werecycle.
Merkið sem sýnir yfirstrikaða 
ruslafötu og er á vörunni, 
rafhlöðunni, bæklingnum eða 
umbúðunum táknar að fara 
verður með allan rafbúnað og 
rafeindabúnað, rafhlöður og rafgeyma 
á sérstaka staði til förgunar að líftíma 
vörunnar liðnum. Þessi krafa á við innan 
Evrópusambandsins. Hendið þessum 
vörum ekki með heimilisúrgangi. Frekari 
upplýsingar varðandi umhverfismál er 
að finna í Eco-yfirlýsingu fyrir vöruna 
á www.nokia.com/environment.