Bluetooth Headset BH 607 - Tækið tekið í notkun

background image

Tækið tekið í notkun

Hlutar höfuðtólsins sem sýndir eru
á forsíðunni eru: rofi (1),
hljóðstyrkstakki (2), eigin takki (3),
svartakki (4), hljóðnemar (5),
stöðuljós (6), tengi fyrir hleðslutæki
(7), eyrnalykkja (8) og hlust (9).

Áður en höfuðtólið er tekið í notkun
þarf að hlaða rafhlöðu þess og para
það við samhæft tæki.

Hlutar tækisins eru segulmagnaðir.
Málmefni gætu dregist að tækinu.
Ekki má geyma kreditkort eða aðra
segulmagnaða hluti með geymsluminni
nálægt tækinu því upplýsingar sem þar
eru geymdar gætu þurrkast út.