 
Rafhlaðan hlaðin
Áður en rafhlaðan er hlaðin skaltu lesa 
vandlega „Upplýsingar um rafhlöðu og 
hleðslutæki“.
 
ÍSLENSKA
Viðvörun: Aðeins skal nota 
hleðslutæki sem Nokia hefur 
samþykkt til notkunar með 
þessari tilteknu gerð. Ef notaðar eru aðrar 
gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki fallið 
niður og slíkri notkun getur fylgt hætta. 
Notkun ósamþykktra hleðslutækja getur 
valdið eldhættu, sprengingu eða haft 
aðra áhættu í för með sér.
Þegar aukabúnaður er tekinn úr 
sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.
1. Stingdu hleðslutækinu í samband
við innstungu.
2. Tengdu snúru hleðslutækisins við
tengið. Rauða stöðuljósið logar 
meðan á hleðslu stendur.
Það gæti tekið allt að klukkutíma
að hlaða rafhlöðuna til fulls. 
Ef rafhlaðan er hlaðin með AC-15 
hleðslutæki í 15 mínútur endist 
hún allt að 5 klukkustundir í tali.
3. Græna stöðuljósið logar þegar
rafhlaðan er fullhlaðin. 
Hleðslutækið er fyrst tekið úr 
sambandi við höfuðtólið, síðan úr 
rafmagnsinnstungunni.
Fullhlaðin rafhlaða endist í allt að 
7 klukkustundir í tali eða allt að 
160 klukkustundir í biðstöðu.
Staða rafhlöðunnar þegar höfuðtólið 
er ekki tengt við hleðslutæki er 
könnuð með því að ýta á rofann þegar 
höfuðtólið er tengt við farsíma. 
Ef stöðuljósið er grænt er rafhlaðan 
nægilega hlaðin. Ef ljósið er gult gæti 
þurft að hlaða rafhlöðuna bráðlega. Ef 
ljósið er rautt skaltu hlaða rafhlöðuna.
Þegar rafhlöðuhleðslan er lítil gefur 
höfuðtólið frá sér tón á 5 mínútna 
fresti og rauða stöðuljósið blikkar.