 
Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki
Þetta tæki er með innbyggða, fasta, 
endurhlaðanlega rafhlöðu. Ekki reyna að 
fjarlægja rafhlöðuna úr tækinu þar sem 
það getur skemmt tækið. Tækið er ætlað 
til notkunar þegar það er hlaðið með 
eftirfarandi hleðslutækjum: AC-3, AC-4, 
AC-15 og DC-4. Númer hleðslutækisins 
getur verið mismunandi eftir klónni sem 
er notuð. Gerð klóarinnar er auðkennd 
með einu af eftirfarandi: E, EB, X, AR, U, 
A,C, K eða UB. Hægt er að hlaða og 
afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum 
en að því kemur að hún gengur úr sér. 
Aðeins skal endurhlaða rafhlöðuna með 
hleðslutækjum sem Nokia hefur 
samþykkt til notkunar með þessu tæki.
Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti, 
eða ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð 
í langan tíma, kann að vera nauðsynlegt 
að tengja hleðslutækið, aftengja það 
síðan og tengja það aftur til að hefja 
hleðsluna. Ef rafhlaðan er alveg tóm 
geta liðið nokkrar mínútur þar til 
hleðsluvísirinn birtist á skjánum.
Taka skal hleðslutækið úr sambandi við 
rafmagnsinnstungu og tækið þegar það 
er ekki í notkun. Ekki má hafa fullhlaðna 
rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar 
sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar. 
Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni 
smátt og smátt ef hún er ekki í notkun.
 
ÍSLENSKA
Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð 
í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F 
að 77°F). Of mikill hiti eða kuldi dregur úr 
endingu og líftíma rafhlöðu. Tæki með 
heitri eða kaldri rafhlöðu kann að hætta 
að starfa tímabundið. Einkum hefur 
mikið frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.
Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem 
þær geta sprungið. Farga skal rafhlöðum 
í samræmi við staðbundin lög og 
reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu 
þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim 
með heimilisúrgangi.
Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki.
Endingartímar eru aðeins til viðmiðunar. 
Raunveruleg afköst eru háð mörgum 
þáttum eins og völdum stillingum 
tækisins, eiginleikum tækisins sem eru 
í notkun (eða eru keyrðir í bakgrunni), 
ástandi rafhlöðunnar og 
umhverfishitastigi.